Desemberhitt
nóvember 28, 2009 4:45 eh. HittHittið verður að þessu sinni 1 des kl 20 í Gallerí Horninu að Hafnarstræti 15.
Á Desemberhittið mæta Gunnar Rafn Birgisson sálfræðingur sem hefur unnið við að útskýra PAS hugtakið og Elísabet Gísladóttir sem skrifaði MA-ritgerð um lagalega hnökra forræðismála.
Í forsjár- og umgengnisdeilum um börn hefur umdeild kenning um Parental Alienation Syndrome (PAS) verið til umræðu. Hugtakið PAS hefur í vaxandi mæli haft áhrif á meðferð slíkra deilumála hérlendis og á úrskurði hjá dómstólum, sýslumannsembættum og barnaverndarnefndum.
Gunnar Hrafn Birgisson er sérfræðingur í klínískri sálfræði og sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Hann hefur m.a. margra ára reynslu af vinnu í forsjár- og umgengnisdeilum um börn.
Sjá frétt: http://www.visir.is/article/20091126/FRETTIR01/564553230
Elísabet Gísladóttir er lögfræðingur. Hún hefur starfað hjá umboðsmanni barna frá árinu 2008.



