Janúarhitt

Hitt Comments Off

Hittið verður að þessu sinni í Gallerí Horninu, Hafnarstræði 15, þriðjudaginn 12. janúar milli 20 og 22.

Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, vann með Starfshópi um aðgerðir til að jafna
betur stöðu kynja í sveitarstjórnum, í vetur. Stefanía ræðir um aðgerðir stjórnvalda til að rétta af kynjahallann í sveitarstjórnum fyrir kosningar í vor.
Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði við HÍ ræðir um kynjakvóta.
Silja Bára Ómarsdóttir aðjúnkt í stjórnmálafræði við HÍ verður með innlegg um persónukjör.

Nú nálgast prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í mörgum stjórnmálaflokkum en víða eru staðan í jafnréttismálum stutt á veg komin.
Hér er nokkrir punkrar um stöðuna:
- Nú stendur yfir endurskoðun sveitarstjórnarlaga og er ætlunin að setja það inn jafnréttisákvæði og kynjakvóta
- Til er Jafnréttissáttmáli sveitarfélaga sem ekki hefur verið virkjaður nema að litlu leyti hér á landi http://www.samband.is/throunar- og-althjodasvid/throunar-og-althjodasvid/frettir/nr/1341/ . Nú stendur til að virkja hann í samstarfi við Jafnréttisstofu.
- Sveitarstjórnir eru mis illa settar eftir landshlutum, fimm sveitarstjórnir eru hreinar karlastjórnir, verst ástand í Norð-austur kjördæmi.
- Aðstöðumun kvenna og karla í sveitarstjórnum er mikill. Víða er starfið lagað að þörfum karla sbr. fundir milli 5 0g 7.
- Ættu sveitarstjórnir ekki að vera kjörlendi kvenna? Nálægðin við verkefnin er mikil og verkefnin snerta konur beint, s.s.   skipulagsmál, menntamál og heilsugæsla.
- Hvað eru mjúk mál? Eru fjármál ekki velferðarmál?
- Við bendum á útvarpsþætti sem Edda Jónsdóttir er að gera um þessi mál fyrir RÚV.
- Á Jafnréttisvoginni http://www.tft.gender.is/is/tft er hægt að skoða myndrænt hvernig staðan er í sveitarfélögunum.

Skrá sig á facebook

Nýárskveðjur

Uncategorized Comments Off

Femínistafélag Íslands óskar þjóðinni friðar og jafnréttis á árinu 2010!