apríl 8, 2010
Hitt
Comments Off
Síðasta Hitt vetrarins verður þriðjudaginn 13. apríl kl. 20-22 á Gallerí
Horninu, Hafnarstræti 15.
Umræðuefni kvöldsins er umhverfisfemínismi. Sigríður Guðmarsdóttir
guðfræðingur er djúpvitur á því sviði og ætlar að leiða okkur inn í umræðuna
ásamt Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
Við hvetjum ykkur til að mæta og taka þátt í umræðum um þennan skemmtilega
vinkil á femínisma.
Umhverfisfemínismi eða vistfemínismi (e. ecofeminism) er vaxandi fræðasvið
víðsvegar um heim. Hann byggir á þeirri hugmynd að umhverfisvernd og
femínismi hafi marga snertifleti og að sterk tengsl séu á milli
undirskipunar kvenna í samfélaginu og ofnýtingu náttúrunnar. Hvort tveggja
byggi á hugmyndafræði tvíhyggju og stigskiptu valdakerfi; hinu lífseiga
karlaveldi annarsvegar og hins vegar nýtingarhugmyndum kapítalismans á
náttúrunni.
Á Hugsandi.is er að finna ágæta grein eftir Hrafnhildi Ragnarsdóttur um
viðfangsefnið:
http://hugsandi.is/articles/er-vistfraedikreppa-nutimans-afleiding-fedraveldis-og-kapitalisma/
http://www.facebook.com/#!/event.php?eid=106854576019860&ref=mf
Hittið er staður og stund.
* til að fá umræðu af stað
* til að varpa fram spurningum
* til að vera í góðum félagsskap
* til að bjóða nýliða Femínistafélags Íslands velkomna
* til að kynna niðurstöður rannsókna sem snúast um jafnréttismál
* til að kynna útskriftarverkefni sem snúast um jafnréttismál
* til að flytja ræður um femínisma og jafnrétti hér heima og erlendis
* þar sem femínistum er velkomið að tjá sig
* þar sem fólk úr stjórnmálum og viðskiptalífi getur komið og kynnt sér mál
sem snúast um jafnrétti og femínisma
* þar sem okkur gefst tækifæri til að sjá andlitin á bak við nöfnin á netinu
* fyrir starfandi hópa innan félagsins til að hittast, kasta fram hugmyndum
og bralla eitthvað skemmtilegt og bráðnauðsynlegt
http://www.feministinn.is
Netfang: feministinn@feministinn.is
Aðsetur: Pósthólf 4065, 124 Reykjavík
Við erum á Facebook: Femínistafélag Íslands
janúar 10, 2010
Hitt
Comments Off
Hittið verður að þessu sinni í Gallerí Horninu, Hafnarstræði 15, þriðjudaginn 12. janúar milli 20 og 22.
Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, vann með Starfshópi um aðgerðir til að jafna
betur stöðu kynja í sveitarstjórnum, í vetur. Stefanía ræðir um aðgerðir stjórnvalda til að rétta af kynjahallann í sveitarstjórnum fyrir kosningar í vor.
Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði við HÍ ræðir um kynjakvóta.
Silja Bára Ómarsdóttir aðjúnkt í stjórnmálafræði við HÍ verður með innlegg um persónukjör.
Nú nálgast prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í mörgum stjórnmálaflokkum en víða eru staðan í jafnréttismálum stutt á veg komin.
Hér er nokkrir punkrar um stöðuna:
- Nú stendur yfir endurskoðun sveitarstjórnarlaga og er ætlunin að setja það inn jafnréttisákvæði og kynjakvóta
- Til er Jafnréttissáttmáli sveitarfélaga sem ekki hefur verið virkjaður nema að litlu leyti hér á landi http://www.samband.is/throunar- og-althjodasvid/throunar-og-althjodasvid/frettir/nr/1341/ . Nú stendur til að virkja hann í samstarfi við Jafnréttisstofu.
- Sveitarstjórnir eru mis illa settar eftir landshlutum, fimm sveitarstjórnir eru hreinar karlastjórnir, verst ástand í Norð-austur kjördæmi.
- Aðstöðumun kvenna og karla í sveitarstjórnum er mikill. Víða er starfið lagað að þörfum karla sbr. fundir milli 5 0g 7.
- Ættu sveitarstjórnir ekki að vera kjörlendi kvenna? Nálægðin við verkefnin er mikil og verkefnin snerta konur beint, s.s. skipulagsmál, menntamál og heilsugæsla.
- Hvað eru mjúk mál? Eru fjármál ekki velferðarmál?
- Við bendum á útvarpsþætti sem Edda Jónsdóttir er að gera um þessi mál fyrir RÚV.
- Á Jafnréttisvoginni http://www.tft.gender.is/is/tft er hægt að skoða myndrænt hvernig staðan er í sveitarfélögunum.
Skrá sig á facebook
nóvember 28, 2009
Hitt
Comments Off
Hittið verður að þessu sinni 1 des kl 20 í Gallerí Horninu að Hafnarstræti 15.
Á Desemberhittið mæta Gunnar Rafn Birgisson sálfræðingur sem hefur unnið við að útskýra PAS hugtakið og Elísabet Gísladóttir sem skrifaði MA-ritgerð um lagalega hnökra forræðismála.
Í forsjár- og umgengnisdeilum um börn hefur umdeild kenning um Parental Alienation Syndrome (PAS) verið til umræðu. Hugtakið PAS hefur í vaxandi mæli haft áhrif á meðferð slíkra deilumála hérlendis og á úrskurði hjá dómstólum, sýslumannsembættum og barnaverndarnefndum.
Gunnar Hrafn Birgisson er sérfræðingur í klínískri sálfræði og sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Hann hefur m.a. margra ára reynslu af vinnu í forsjár- og umgengnisdeilum um börn.
Sjá frétt: http://www.visir.is/article/20091126/FRETTIR01/564553230
Elísabet Gísladóttir er lögfræðingur. Hún hefur starfað hjá umboðsmanni barna frá árinu 2008.
Skrá sig á Facebook
nóvember 1, 2009
Hitt
Comments Off
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra og Fríða Rós Valdimarsdóttir mannfræðingur mæta á Nóvemberhittið, næsta þriðjudag, og ræða um mansal á Íslandi.
Hittið verður í Gallerí Horninu, Hafnarstræti 15, þriðjudaginn 3 nóvember næstkomandi kl 20.
Skráið ykkur á facebook
október 3, 2009
Hitt
Comments Off
Þá er komið að fyrsta Hitti vetrarins. Næstkomandi þriðjudag, þann 6.
október, mun Þórdís Elva Þorvaldsdóttir koma og fjalla um ofbeldi. Þórdís
Elva gaf nýlega út bókina “Ofbeldi á Íslandi – Á mannamáli”.
Ofbeldi er útbreitt á Íslandi og hætt er við að ofbeldi aukist í kreppu og
nú þegar höfum við séð niðurskurð frá hinu opinbera í þjónustu til þolenda
kynferðisofbeldis. Það er því brýnt að við stöndum vaktina!
Staður og stund:
Gallerý Hornið, Hafnarstræti 15.
Þriðjudagur 6. október kl. 20:00.
Sjáumst vonandi sem flest – aðgangur ókeypis.
Bestu kveðjur,
Ráð Femínistafélags Íslands