september 4, 2010
Ályktanir/ávörp
Comments Off
Femínistafélag Íslands lýsir yfir mikilli óánægju með að konum hafi fækkað í ríkisstjórn Íslands með ráðherrabreytingum sem nú hafa verið kunngjörðar. Í tæpt ár hafa verið jöfn kynjahlutföll í ríkisstjórninni og var það í fyrsta sinn í sögu landsins. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er lögð mikil áhersla á jafnréttismál og þar stendur m.a.:
“Áhrif kvenna í endurreisninni verði tryggð. Því mun ríkisstjórnin
beita sér fyrir því að jafna hlutfall kynjanna á öllum sviðum
samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf.”
Félagið sér ekki að breytingar á ríkisstjórn séu í takt við stjórnarsáttmálann og harmar að jafnréttissjónarmið séu látin víkja þegar á hólminn er komið. Engin rök eru fyrir þvi að fresta jafnrétti fram yfir áramót.
ágúst 12, 2010
Ályktanir/ávörp
Comments Off
Femínistafélag Íslands tekur undir með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og
hvetur til þess að Þjóðkirkjan taki skýra afstöðu gegn
kynferðisofbeldi og virkan þátt í baráttu gegn því. Prestar og aðrir
trúarleiðtogar eru í valdastöðu gagnvart þeim sem til trúfélaga leita
eða starfa innan þeirra. Misnotkun á slíkri stöðu er gríðarlega
alvarleg.
Femínistafélagið fagnar þeim skrefum sem Þjóðkirkjan hefur þegar tekið
til að bregðast við kynferðisofbeldi en brýnir hana og önnur trúfélög
til frekari aðgerða.
mars 8, 2010
Ályktanir/ávörp
Comments Off
Velkomin öll til morgunverðar hjá Femínistafélaginu og til hamingju með daginn!
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna á 100 ára afmæli í dag. Fyrir 100 árum síðan stakk þýska baráttukonan Clara Zetkin upp á því á fundi í Kaupmanahöfn að haldinn yrði alþjóðlegur baráttudagur kvenna um þetta leiti árs og 100 árum síðar erum við hér saman komin.
Lestu afganginn…
nóvember 7, 2009
Ályktanir/ávörp
Comments Off
Femínistafélag Íslands fordæmir framferði fjármálastjóra KSÍ og viðbrögð
sambandsins í kjölfarið og krefst þess að stjórnin segi af sér og
fjármálastjóranum verði vikið úr starfi hið fyrsta.
Fréttir af heimsókn fjármálastjórans á súlustað í Sviss hafa vakið
verðskuldaða athygli í samfélaginu á undanförnum dögum, enda fáheyrt að
menn sem gegni trúnaðarstörfum fyrir samtök sem kenna sig við forvarnir og
heilbrigt líferni verði uppvísir að iðju sem tengist skipulagðri
glæpastarfsemi, misnotkun á bágri stöðu kvenna og það með kreditkort
vinnuveitandans upp á vasann.
Knattspyrnusamband Íslands er regnhlífarsamband fyrir stærstu íþrótt á
Íslandi sem á að vera uppbyggileg og þroskandi fyrir fólk á öllum aldri.
Eðlileg og sjálfsögð krafa samfélagsins er að stjórn þess og fólk sem þar
gegnir trúnaðarstörfum hagi sér í samræmi við þá ábyrgð sem það ber.
Árið 2006 sendi Íþróttasamband Íslands frá sér yfirlýsingu, þar sem vændi
og mansal var fordæmt í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem
fram fór í Þýskalandi. Þar segir m.a. ,,Megininntak íþrótta er mannleg
reisn og heilbrigt líferni.” Þarft er að rifja upp í þessu samhengi að KSÍ
neitaði að leggja baráttunni gegn vændi og mansali lið á mótinu þrátt
fyrir fjölmargar áskoranir, m.a. frá 14 kvennasamtökum og jafnréttisnefnd
Reykjavíkur.
Ljóst er að Knattspyrnusamband Íslands hefur brugðist hlutverki sínu
stórkostlega. Áhugafólk um knattspyrnu og íþróttir á betra skilið.
Virðingarfyllst,
Ráð Femínistafélags Íslands
október 19, 2009
Ályktanir/ávörp
Comments Off
Nauðungarflutningur og hvarf ungrar konu af erlendum uppruna hefur verið á forsíðum fjölmiðla undanfarna daga. Ljóst þykir að um mansal er að ræða þ.e. að ætlunin hafi verið að selja konuna í vændi. Samlandar konunnar hafa sætt gæsluvarðhaldi og tengsl málsins við glæpaklíku þykja sönnuð.
Fyrir stuttu síðan var í fyrsta sinn leiddur fyrir dómstóla aðili sem grunaður er um að stýra mansali á Íslandi. Í því máli er einnig um unga konu ef erlendum uppruna að ræða .
Sérfræðingar í þessum málaflokki hafa ítrekað bent á að þau mál sem sem rata upp á yfirborðið séu einungis brotabrot af þeim fjölda mansalsmála sem eiga sér stað, óáreitt.
Tengslin á milli súludansstaða, vændis og mansals eru löngu sönnuð. Á Íslandi eru því augljóslega þeir innviðir og tengslanet fyrir hendi sem mynda grundvöll fyrir mansalsmál.
Femínistafélag Ísland skorar á stjórnvöld að hefja markvissar aðgerðir gegn mansali og vændi nú þegar. Femínistafélagið krefst lokunar súlustaða, að fórnarlamba- og vitnavernd verði innleidd í samræmi við aðþjóðasamninga og að aðgerðaráætlun gegn mansali verði hrint í framkvæmd strax.